ekki er ég nú búin að vera dugleg að skrifa enda fengið að
heyra það
en nú stendur það til bóta.
Tímin líður bara svo hratt þegar það er gaman... Dagarnir líða
áfram í göngutúrum, leikfimi, heimsóknum og kaffihúsaferðum og svo
reyni ég að sinna heimilinu eitthvað þarna inn á milli. Eyþór
dafnar hratt og vel og þroskast með hverjum deginum alltaf svo
glaður og ljúfur. Þó hefur hann aðeins verið að láta mömmu
sína vakna á nóttinni upp á síðkastið (það er eins gott að hún hafi
það nú ekki OF gott) því hann vill drekka dálítið oft enda
stækkar hann og stækkar en mömmur þurfa líka að sofa og því er
verið að vinna í að venja ljúflinginnn af þessum ósið að borða á
nóttunni ! 
Svo var drengurinn skírður hér heima af Vigfúsi Þór Árnasyni
þann 9. apríl og lukkaðist það rosalega vel og Eyþór hló bara á
meðan á athöfninni stóð enda er hann alltaf svo glaður 
Nú ætlar fjölskyldan að fara í pönnsur til ömmu og afa (Sigrúnar
og Guðmundar), svo nóg í bili en haldiði endilega áfram að skrifa í
gestabókina það er svo gaman að heyra frá öllum og kíkiði á
myndirnar, ég er búin að setja inn fullt af nýjum myndum, ég er svo
dugleg
bæ bæ í bili.....